3.1.2007 | 00:20
Hvað eru margar kukkustundir í einum sólarhring?
Hvað haldið þið að Björgólfur Guðmundsson hafi margar klukkustundir í hverjum sólarhring? Hvað haldið þið að hann hafi marga daga í árinu?
Jú svarið er einfalt: JAFN MARGA OG VIÐ HIN.
Síðan dettur okkur í hug að vegna tímaskorts getum við aldrei náð neinum markmiðum í lífinu, hann var nánast gjaldþrota en er samt á þeim stað sem hann er í dag og við vitum öll. Á banka og fótboltalið í Ensku... geri aðrir betur.
Hvernig fór hann að þessu, er hann yfirnáttúrulegur? Nei ég þarf ekki að spurja hann ég veit að hann hefur lagt allt undir og lagt tilfinningu í sín markmið og framkvæmt. Hann hafði líka þekkingu á rekstri og því setti hann saman þau þrjú púsl sem þarf til í árangurspúslið (tilfinningu eða áhuga, þekkingu og framkvæmd).
Það er alltaf tími til að bæta líf sitt, það hefur verið marg sannað, aðeins spurning um forgangsröðun og rétt hugarfar. Höfum bara hugfast að við höfum jafn margar klukkustundir í sólarhringnum og Björgólfur, hugsið ykkur það er í raun ekkert sem skilur okkur frá honum, nema kannski nafnið og hver vill heita Björgólfur eða Björgmundur eða Björg-eitthvað.......
Athugasemdir
hehehe góður Bjöggi ! Tókstu til þín eitthvað úr skaupinu...
Halldóra
Halldóra Skúladóttir (IP-tala skráð) 3.1.2007 kl. 09:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.