2.2.2009 | 18:11
Gera meira í minnihluta en meirihluta!
Er ekki best að hafa Sjálfstæðismenn í minnihluta... þeir virðast gera meira á fyrstu viku í minnihluta en frá síðustu kosningum.
Ég mæli með því
Fyrstu verk sjálfstæðismanna í stjórnarandstöðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þessi flokkur sem nefnir sig við sjálfstæði er sorglegur.
Gerir ekkert nema setja landið á hausinn og verndar svo vini sína bankamennina sem settu okkur á hausinn.
Þessi frumvörp þeirra eru pólitík. Þeir hefðu aldrei gert meðan þeir voru í stjórn.
Satt best að segja sorglegur flokkur í brunarústum eigin mistaka.
Már (IP-tala skráð) 2.2.2009 kl. 18:21
Sæll Bjöggi, þú ætlar þó ekki að segja mér að þér lítist vel á nýju stjórnina?
Aðalsteinn Bjarnason, 2.2.2009 kl. 18:21
Já, það er eins og einhver verkkvíði hverfi nú þegar þau eru farin úr ríkisstjórn.
Friðrik Hansen Guðmundsson, 2.2.2009 kl. 18:22
Er ekki bara að koma í ljós að það var Samfylkingin sem var dragandi lappirnar en ekki Sjálfstæðisflokkurinn.
Carl Jóhann Granz, 2.2.2009 kl. 18:22
Nei Alli minn ég get nú ekki sagt að mér lítist vel á nýju stjórnina.
Þetta er eins og að synda kafsund... kannski kemst maður yfir... kannski drukknar maður á leiðinni.... hehe... En auðvitað vonar maður að við komumst yfir þetta.
En maður huggar sig við það að það verða kosningar 25.apríl. Vonandi getum við kosið frá okkur K-in 3.... Kommana, Kapitalistana og Kratana... :)
Björgmundur Örn Guðmundsson, 2.2.2009 kl. 18:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.