30.12.2006 | 22:05
Ímyndaðu þér...
Öll mannanna verk byrja í huganum. Hallgrímskirkja var fyrst búin til í huga arkitektsins. Hver fjölskylda byrjar í huga þeirra einstaklinga sem setjast á móti hverju öðru og með glit í auga hefja líf saman, samband.
Draumar og markmið eru önnur orð yfir ímyndun, það að sjá fyrir sér framtíðina og mála hana.
Þess vegna skiptir máli að við sjálf setjumst niður og ímyndum okkur næsta ár, árið sem draumar okkar og markmið náðust. Með því að setja niður á blað eða í huga okkar þau atriði sem við viljum raunverulega ná og afreka virðast önnur atriði sem skipta okkur ekki máli hverfa. Það er jú svo margt í lífi okkar sem truflar okkur. Hið stöðuga áreyti auglýsinga reyna að villa okkur sýn og leiða okkur áfram í þá átt sem aðrir vilja. Því er það enþá mikilvægara í nútímaþjóðfélagi að við vitum og gerum okkur grein fyrir því hvert við stefnum eða öllu heldur hvert við viljum stefna.
Hvers vegna eru margir Nóbelsverðlaunahafar skyldir þ.e. börn Nóbelsverðlaunahafa hafa líka fengið Nóbelsverðlaun? Er það vegna þess að sumar fjölskyldur eru afburðafjölskyldur eða er það vegna þess að það er klíkuskapur í kringum Nóbelinn? NEI það er vegna þess að börn Nóbelsverðlaunahafanna gátu séð það fyrir sér að þau næðu því, höfðu trú á ímyndun sinni.
Setjum okkur markmið og sjáum fyrir okkur drauma okkar og síðast en ekki síst, leyfum þeim að koma til okkar án þess að við séum sjálf að setja okkur hindranir, við getum allt ef við bara leyfum lífinu að koma til okkar.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.