26.12.2006 | 12:35
5 armbeygjur
Hversu margar armbeygjur getum við gert?
Ef við leggjumst á gólfið og getum gert 5 armbeygjur er það allt sem við getum gert???? NEI það er ekki allt, hvíldu þig í eina mínutu og þú munt geta 5 í viðbót.
Ef þú æfir þig dag eftir dag þá munt þú á endanum geta gert 50 armbeygjur í einu eða 100 allt eftir því hversu mikið þú hefur æft þig.
Svona er lífið líka, við getum gert miklu meira en við getum í dag. Við getum gert miku meira með því að æfa okkur og læra meira.
Um leið og við gerum okkur grein fyrir því að við getum nánast aldrei sagt við nokkurn mann: ,, Ég bara get ekki meir", heldur: ,,Ég get bara ekki meira NÚNA en á morgun......."
Ef við viljum ná langt og ná árangri þurfum við að æfa okkur. Ekki láta núverandi ástand eða getu setja ykkur hindranir, við getum öll miklu meira, en það kostar bara æfingu og tíma.
Væri ekki sniðugt að byrja núna að æfa það sem þú villt vera góður í?
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.