22.12.2006 | 15:40
Góðverk um jólin
Nú þegar jólin nálgast og jólastressið að buga mörg okkar skulum við taka saman höndum og gefa af okkur og þannig létta á okkur öllum síðasta spölinn. það er nefnilega miklu auðveldara að klára jólainnkaupin og undirbúninginn með eitthvað gott á samviskunni og eins ef einhver hefur rétt manni hjálparhönd.
Gerum góðverk fyrir jólin og sköpum þannig bylgju kærleikans sem léttir á okkur öllum.
Gerðu góðverk sem skiptir máli, ekki gjafir eða peninga. Gefðu verkefni, góð orð og aðstoð. Við höfum alltaf tíma til þess því ánægjan sem skapast við góðverk fleytir okkur áfram yfir allar hindranir og þannig spörum við tíma á móti.
Njótum lífsins með hvort öðru yfir jólin og gleðjumst saman.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.