Ekki lesa, þetta gæti breytt lífi þínu...

candy-hearts "Sumt fólk hefur lært að þéna vel en hafa ekki lært að lifa vel" -- Jim Rohn

"Og á endanum er það ekki árin í lífinu sem telja. Heldur lífið í árunum." -- Abraham Lincoln

"Að vera ríkur snýst ekki um peninga. Að vera ríkur er hugarfar. Sum okkar, sama hversu mikinn pening við eigum munu aldrei eiga tíma til að stoppa við og borða innan úr vatnsmelónu. Og sum okkar verða rík án þess að eiga meira en næstu launaútborgun." -- Harvey B. Mackay

"Gerðu líf þitt stórkostlegt; sjáðu fyrir þér líf án takmarkana fyrir því hvað þú getur orðið, fengið eða gert." -- Brian Tracy

"Flest fólk eyðir meiri tíma í að skipuleggja fríið sitt eða partíið heldur en að skipuleggja líf sitt." -- Denis Waitley

"Tilgangur lífsins er ekki að vera hamingjusamur. Heldur að koma að gagni, vera heiðarlegur, samúðarfullur og að það hafi skipt máli að þú lifðir og lifðir vel." -- Ralph Waldo Emerson

"Lífstíll er listin að uppgötva leiðir til að lifa óvenjulega." -- Jim Rohn

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birna M

Takk fyrir þetta, ég hef mikið velt þessum hlutum fyrir mér

Birna M, 19.12.2006 kl. 18:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband