25.1.2007 | 14:05
Sir Elton eða Elton
Undan farið hafa fréttamenn í leit að fyrirsögnum og fólk með lítið sjàlfstraust gagnrýnt Ólaf Ólafsson fyrir að fà Sir Elton John til að spila í afmlinu sínu.
Allir eiga sér stóra drauma og eru þeir drifkraftur okkar þegar lífið er erfitt.
Þegar einstaklingar hafa nàð miklum àrangri þà làta þeir drauma sína rtast.
Þegar við gagnrýnum það þegar einhver ltur drauma sína rtast þà erum við að gera lítið úr okkar draumum.
Við eigum að fagna því þegar menn làta drauminn rtast því þà getum við fengið strri drauma því það eru aðeins hindranir okkar sjàlfra sem takmarka okkur.
Það eru ekki bara séra Jónar sem geta nàð àrangri en það er undir okkur komið hvort Jónar geti notið þess líka.
E.s.Þakka bróður mínum líka fyrir þessa innsetningu.
Allir eiga sér stóra drauma og eru þeir drifkraftur okkar þegar lífið er erfitt.
Þegar einstaklingar hafa nàð miklum àrangri þà làta þeir drauma sína rtast.
Þegar við gagnrýnum það þegar einhver ltur drauma sína rtast þà erum við að gera lítið úr okkar draumum.
Við eigum að fagna því þegar menn làta drauminn rtast því þà getum við fengið strri drauma því það eru aðeins hindranir okkar sjàlfra sem takmarka okkur.
Það eru ekki bara séra Jónar sem geta nàð àrangri en það er undir okkur komið hvort Jónar geti notið þess líka.
E.s.Þakka bróður mínum líka fyrir þessa innsetningu.
Athugasemdir
það er ekki alveg svo einfalt að láta drauma rætast vinur....einfaldast er að eiga viðskiptaráðherra sem vin as u can read below:
....hinn rússneski eigandi Chelsea náði til sín nokkrum ríkisfyrirtækjum á
sínum tíma á réttum tíma og með aðstoð vel valinna manna og er nú einn ríkasti
maður heims. Ekki fer miklum sögum af "kaupverðinu" né heldur að öðrum hafi
verið leyft að bjóða þarna í fyrirtækin....neipp, þeim var skemmtilega komið
fyrir hjá hinum "útvöldu".
Okkar útgáfa af þessum manni hlýtur að vera Ólafur Ólafsson í Samskipum sem
"gaf" milljarð í höfuðstól um helgina og renna vextirnir af honum til
mannúðarmála og líknarmála - cirka 100-150 millur árlega sem er svipað og
ónefnd veisla kostaði.
er ekki tímabært að rifja aðeins upp hvernig menn fara að því að eignast
rúmlega 100 þúsund milljónir á innan við 5 árum á íslandi en hrein eign Óla
partýkalls er vel yfir 100 þúsund milljónir?
fyrir utan búnaðarbankann.....þá var VÍS skemmtilegt dæmi....en látum fyrrum
landsbankastjóra hafa orðið:
Hann skrifar þetta í morgunblaðið 4.oktober 2006:
"Rasphúsmenn
FYRIR þremur árum ákváðu bankaráðsmenn Landsbankans hf., þeir Helgi Guðmundsson
og Kjartan Gunnarsson, að selja hinum svonefnda S-hópi hlutabréfaeign bankans í
Vátryggingafélagi Íslands, tæplega 50% eignarhlut í VÍS. Einstöku vildarvinir
fengu að fljóta með í kaupunum, þar á meðal Skinney-Þinganes á Höfn í
Hornafirði, erfðagóss Halldórs Ásgrímssonar.
Kaupverð á bréfum Landsbankans í VÍS var 6,8 milljarðar króna; sex þúsund og
átta hundruð milljónir. Réttum þremur árum síðar seldi S-hópurinn og einkavinir
þeirra þennan hlut í VÍS fyrir rúmlega 31 milljarð króna; þrjátíu og eitt
þúsund milljónir. Mismunur 24,2 milljarðar - tuttugu og fjögur þúsund og tvö
hundruð milljónir.
Sæmileg ávöxtun það, enda sá Finnur Ingólfsson um veltuna.
Þegar kaup S-hópsins og co. fóru fram hafði Landsbankinn verið einkavæddur, en
allir hlutir í honum í opinberri eign, þ.e.a.s. í eigu almennings. Það var því
í umboði ríkisstjórnar, sér í lagi bankamálaráðherrans, Valgerðar
Sverrisdóttur, sem Helgi og Kjartan seldu, en þeirra er ábyrgðin skv. lögum um
viðskiptabanka. Þau vinnubrögð kallaði einn úr Einkavæðingarnefnd, Steingrímur
Ari Arason, fráleit, sagði sig úr nefndinni; gekk brott og grét beisklega.
Það hlýtur að verða fyrsta verk nýrrar ríkisstjórnar eftir næstu kosningar, að
skipa opinbera rannsóknarnefnd sem fari rækilega í saumana á allri svívirðunni,
sem Einkavæðingarnefnd lét eftir sig. Auðvitað verður einkavæðing þáverandi
utanríkisráðherra, Halldórs Ásgrímssonar, á Íslenzkum aðalverktökum líka tekin
með í reikninginn.
Þegar öll kurl hafa komið til grafar er spurningin ekki sú hvort hinir ábyrgu
verði dæmdir í rasphús heldur hversu langa tukthúsvist.
Framsóknarmenn höfðu um alllanga hríð unnið hörðum höndum að því að ná undir
sig Landsbankanum. Þegar núverandi Seðlabankastjóri yfirgaf stefnu sína um
dreifða eignaraðild og heimtaði að selja bankann einkavinum sínum, ærðust
framsóknarmenn og töldu Búnaðarbankann of rýran feng. Lausn var fundin með því
að gefa þeim milljarðana í VÍS til að jafna metin og var höfð í huga aðferð
Kambránsmanna að skipta þýfinu sem jafnast."
Síðan skrifar hann 14.oktober 2006 í moggan líka þetta:
"Bankaræningjar
ÞAÐ BLASIR við öllum með augu opin að vinnubrögð hinnar svokölluðu
einkavæðingarnefndar voru samfelldur fjármálalegur sóðaskapur af verstu gerð.
Þó virðast sölur ríkisbankanna taka þar öðru fram.
ÞAÐ BLASIR við öllum með augu opin að vinnubrögð hinnar svokölluðu
einkavæðingarnefndar voru samfelldur fjármálalegur sóðaskapur af verstu gerð.
Þó virðast sölur ríkisbankanna taka þar öðru fram.
Fyrir skemmstu rakti undirritaður í stuttri klausu í Morgunblaðinu aðfarir
bankaráðsmanna Landsbanka Íslands, Helga S. Guðmundssonar og Kjartans
Gunnarssonar, við sölu á hlutabréfum bankans í Vátryggingarfélagi Íslands, en
þær athafnir voru undanfari sölu bankans. Í ljós kom, að hlutabréf Landsbankans
voru seld S-hópnum svonefnda fyrir 6,8 milljarða króna. Þessi bréf seldi
S-hópurinn 3 - þremur - árum síðar fyrir rúmleg 31 milljarð króna. Mismunur
rúmir 24 milljarðar.
Á sölu hlutabréfa Landsbankans í VÍS á sínum tíma báru aðalábyrgð þeir Helgi S.
Guðmundsson og Kjartan Gunnarsson, vafalaust að undirlagi þáverandi
bankamálaráðherra, framsóknarfrúarinnar frá Lómatjörn. Ærin ábyrgð hlýtur það
að teljast, enda tukthússök.
En sagan var ekki hálfsögð. Það kemur í ljós við kaup S-hópsins á FL-Group að
einn af aðalmönnum S-hópsins reynist vera hinn sami Helgi S. Bankaráðsmaðurinn
hefir sem sagt gefið sjálfum sér milljarðana við svokallaða sölu VÍS-bréfanna
til S-hópsins.
Það er ennfremur bókað að Kjartan Gunnarsson á vænan hlut í Landsbanka Íslands
og hefir sem bankaráðsmaður í fyrrum Landsbanka ráðið miklu um það verðlag, sem
hann sjálfur naut við kaup sín í nýja Landsbankanum.
Það er eftir öðru að Helgi þessi S skuli vera formaður stjórnar Seðlabanka
Íslands - eða kannski við hæfi.
Þessi dæmi sýna ljóslega hverskonar framsóknar-forarvilpu ríkisstjórnarmenn eru
sokknir í, enda munu þeir aldrei leyfa opinbera rannsókn á málavöxtum meðan
þeir sitja á valdastólum.
Eru það kannski þessir kónar sem nýi forsætisráðherrann á við þegar hann segir
í alþingi á dögunum: ,,Ég missi ekki svefn yfir því að einhverjir aðilar hafi
hagnast á viðskiptum."
Á hinu kynni að verða stutt bið að einhverjir af bankaræningjunum yrðu andvaka.
Höfundur er fv. form. Frjálslynda flokksins."
Síðan var Icelandair tekið yfir...þeir komnir í FL group og Straum Burðaráss
o.fl. skemmtilegt....
Er það ekki einsdæmi í hinum vestræna heimi að sjálfur viðskiptaráðherra hætti
störfum og taki þátt í einkavæðingu sinnar eigin ríkisstjórnar - og nái á innan
við 5 árum nokkur hundruð þúsund milljónum til sinna manna og stýri núna einum
öflugasta fjárfestingarhóp landsins ???
Er ekki timabært að rifja aðeins upp hverjir tilheyra þessum hóp manna sem
undir forystu fyrrum viðskiptaráðherra Íslands eru orðnir meðal auðugustu manna
íslands....og það á vel innan við 5 árum ???
"Island er best í heimi.......við eigum öll skilið að fá Thule !"
Kv.
JS
JS (IP-tala skráð) 25.1.2007 kl. 14:18
Þetta kallast ekki að láta drauma sína rætast! sorry Björgmundur.
Þetta er sóun og mikilmennskubrjálaði.
ég kalla þetta ekki drauma heldur martröð, Íslands í dag
kveðja og hafðu það gott, láttu þér endilega bata fljótt og skilaðu þér svo heim í heiðardalinn, þar sem draumurinn snýst um andlega velferð og sjá hamingjunna í sólarkomu og sólarpönnukökum.
Halla Signý (IP-tala skráð) 25.1.2007 kl. 14:40
Hæ elsku Bjöggi.
Vona að það séu bara veikindin sem hafa gert þig svona siðblindann í dag!
Gangi þér vel og láttu þig dreyma hamingjudrauma.
Bestu kveðjur
Bessa
Bessa (IP-tala skráð) 27.1.2007 kl. 19:05
Ég held að þeir sem eru að koma með athugasemdir sem mest um þennan pistil séu ekki alveg að gera sér grein fyrir tilgangi síðunnar eða pistilsins og ættu því frekar eyða orkunni sinni í að lesa og gagnrýan annarstaðar t.d. pólistískar síður þar sem svona neikvæðni á frekar heima.
Innihald pistilsins snýst ekki um það hvaða mann hann Ólafur hefur að geyma eða á hvaða forsendum hann er ríkur eða fátækur. Ef þið lesið betur innihald greinarinn þá er verið að benda okkur á það að mikilvægt sé fyrir okkur að gera okkur grein fyrir því að geta glaðst með öðrum þegar þeir láta drauma sína rætast þannig náum við auðveldar að uppfylla okkar drauma sem er nauðsynlegt öllum.
Burt sér frá innihaldi greinarinnar að hann Ólafur sem greinin virðist vera farin að snúast sem mest um átt þennan draum frá því hann var lítill strákur að fá Elton John til að spila í veislu hjá sér og leyfa fólkinu sem honum þykir vænt um að upplifa þennan draum kannski var nákominn veikur ættingi hans sem átti sér þann draum heitast að sjá Elton John áður en hann myndi deyja ????? hver veit ? nú ef málin liggja þannig að þá hafa allir samúð og skilning og horfa öðruvísi á hlutina
Fyrir hinn fátæka sem ekki á fyrir mat getur það talist sýndarmennska að byggja sér fallegt sumarhús í yndislegum firði út á landi
Fyrir hinn fatlaða getur það þótt sýndarmennska að klífa Mount Everest þó það sé draumur göngugarpsins sem æft hefur að þrautsegju í 5 ár .
Fyrir hinn blinda getur það þótt sýndarmennska að þurfa að eiga 50 tommu flatskjá eða risaútsýni yfir pollinn á Ísafirði..
Fyrir hinn heyrnalausa getur það þótt sýndarmennska að geta ekki lifað án gms farsýma og ég man ekki betur en öllum hafi þótt það sýndarmennska þegar fyrstu einstaklingarnir eignuðust farsímann???
Fyrir hinn laglausa getur það þótt sýndarmennska að eyða mörgum milljörðum í að taka þátt í Eurovision á hverju ári
Þetta eru skoðanir og fer allt eftir því hvernig við lítum á hlutina !!!
Bendi ykkur á að velta ykkur ekki of mikið upp úr velgengni annara eða það hvernig aðrir uppfylla drauma sín. . Ef þið gleðjist ekki yfir velgengni annara eða þegar aðrir láta drauma sína rætast eruð þið að eyðaleggja ykkar drauma ómeðvitað .þegar þið gleðjist með öðrum þá stækka draumar ykkar um leið..
Alltof margir eru aldir upp við það að þeir sem eru ríkir séu óheiðarlegir eða hafi öðlast velgengni á fölskum forsendum því spúið eitri inn í ykkar eigin huga ef þið leyfið ykkur að hugsa þannig.
Reynið frekar að lesa aftur yfir pistilinn og skilja innihald hans og tileinka ykkur innihaldið inn í ykkar líf:
Allir eiga sér stóra drauma og eru þeir drifkraftur okkar þegar lífið er erfitt.Þegar einstaklingar hafa nàð miklum àrangri þà làta þeir drauma sína rtast.
Þegar við gagnrýnum það þegar einhver ltur drauma sína rtast þà erum við að gera lítið úr okkar draumum.
Við eigum að fagna því þegar menn làta drauminn rtast því þà getum við fengið strri drauma því það eru aðeins hindranir okkar sjàlfra sem takmarka okkur.
Haltu áfram Björgmundur minn að skrifa svona uppbyggjandi efni, fyrir mér ertu ekki siðblindur. Ég á mér draum um að þér batni og þú öðlist heilsu til að njóta lífsins aftur, en ég á mér líka draum um að fara með fjölskyldu mína, vini og alla þá sem mér þykir vænt um í siglingu í Karabíska hafið einhvern tímann á ævinni J það verður nú aldeilis sýndarmennskan sem hlýtur að koma í séð og heyrt hehehe sjáumst í Karabískahafinu
Ef þú gerir alltaf það sem þú hefur alltaf gert færðu alltaf sem þú hefur alltaf fengið
Jim Rohn
Góðan bata
Kveðja, Jónína
Gudrun Jonina (IP-tala skráð) 28.1.2007 kl. 01:36
Algjörlega sammála þér Bjöggi. Það er áhugavert að sjá svörin hér að ofan. Við þurfum mörg að rífa niður aðra til reyna að bægja ótta okkar um að vera minnimáttar í burtu...við erum alltaf hrædd við að láta okkar eigið ljós skína við erum hrædd um að einvhver híi á okkur.
Ímyndum okkur að heiðarlegasti maður á Íslandi hefði fengið Pamelu Anderson í partýið sitt fyrir 100 milljónir af því að hann hefði verið skotinn í henni frá 12 ára aldri og léti draum sinn rætast...hvernig myndum við bregðast við ?, hvernig myndum við rífa strákinn niður?
Fyrst að Ólafur bauð Elton þá hefur hann gefið mér leyfi til að láta minn draum rætast að bjóða Ragga Bjarna í afmælið mitt. Takk fyrir að þora að láta dramana rætast Ólafur.
kveðja,
Hrafn
Hrafn Aðalsteinn Ágústsson, 3.2.2007 kl. 18:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.